Kynning á hugarfarsþjálfun sérstaklega ætluð stjórnendum fyrirtækja og starfsmönnum mannauðssviða
Ef þú ert vel á þig kominn líkamlega getur þú farið upp brattar brekkur án líkamlegs álags. Á sama hátt getur þú betur tekist á við allar þær áskoranir sem lífið hefur upp á að bjóða ef þú ert í andlegu jafnvægi. Það að stunda líkamsrækt byggir upp vöðva líkamans en vissir þú að einnig er hægt að þjálfa heilahvelin; „vöðvana“ í heilanum á markvissan hátt?
Eftirfarandi niðurstöður samkvæmt rannsóknum sýna fram á að:
Sölufólk selur 37% meira
Teymi vinna 31% betur saman
Þú verður þrisvar sinnum meira skapandi
Þú getur lifað 10 árum lengur
Streitustigið lækkar hjá þér og þú verður hamingjusamari
Þetta er fjögurra stunda vinnustofa sem mun gefa þér skilning á svokölluðu PQ kerfi fyrir jákvæða hugarfarsþjálfun sem er ætluð bæði einstaklingum og teymum fyrirtækja.
Þessi einfalda aðferð við þjálfun hugans hefur verið að riðja sér til rúms um allan heim þar sem starfsmenn fyrirtækja þurfa nú oftar að vinna heima og halda fjarstýrða fundi.
PQ kerfið hjálpar starfsmönnum við að leysa úr ágreiningi á auðveldan hátt, takast á við streitu, efla framleiðni og afköst og fyrirbyggja neikvæðar tilfinningar og hugsanir.
Með einfaldri aðferð má þróa með sér betri hæfni til að takast á við flókin starfsmannamál og styrkja jafnvægi á milli vinnu og einkalífs.
Við erum öll með litla púka á öxlunum og með því að læra að skilja púkana okkar og þjálfa hugann með einföldum og skemmtilegum æfingum getum við virkjað betur hægra heilavelið, en það er sá staður heilans sem skynjar jákvæðar tilfinningar eins og sköpun, kærleika og framkvæmdargleði. Við stöndum okkur mun betur í lífi og starfi og verðum hamingjusamari fyrir vikið.
Af hverju er mikilvægt fyrir stjórnendur fyrirtækja og starfsmenn í mannauðsstöðum að taka þátt í svona vinnustofu?
Í dag eru mannauðsmál að þróast mjög hratt og hafa þau einnig tekið miklum stakkaskiptum í kjölfar þess ástands sem geysar í heiminum í dag.
Núna er enn frekari ástæða til að leggja meiri áherslu á gildi og afköst starfsmanna og þeirra félaslegu aðstæður og er hugarfarsefling nauðsynlegur þáttur í þeim efnum
Samkvæmt Sjálfbæru þróunarmarkmiðum Sameinuðu Þjóðanna er mikilvægi sjálfbærrar mannauðstjórnunar hjá fyrirtækjum skýr. Áherslan í þróun mannauðsmála í heiminum fyrir árið 2020 var á nám, starfsreynslu og mikilvægi persónulegra heilsu- og vellíðunaráætlana sem er stór þáttur í PQ hugarfarsþálfuninni
Með þessari vinnustofu munt þú geta tileinkað þér eiginleika sem nýtast þér jafnt í starfi sem og einkalífi. Þú munt þekkja betur inn á sjálfan þig ásamt því að eiga betri og dýpri samskipti við fólkið í þínu umhverfi
Endilega hafðu samband ef þú hefur áhuga á að heyra meira um þetta frábæra prógram eða bara til að spjalla um mikilvægi hugarfarsþjálfunar í heiminum í dag
Sendu mér póst á info@natkahealth.com eða natkahealth@gmail.com
Því ætti ég að taka þátt í þessu námskeiði?
Hvernig fer það fram?
Í samstarfi við Positive Intelligence, bíð ég upp á átta vikna námskeið í hugarfarsþjálfun sem er algjörlega 'online' en samt mjög persónulegt
Innifalið er:
This program can be completely accessed via your phone so this makes it easy and accessible any time of the day.
PQ kerfið er algjörlega tengt símanum þínum sem þýðir að þú getur notið þess á hvaða tíma dagsins sem að hentar þér best